{"id":539,"date":"2014-04-19T10:59:01","date_gmt":"2014-04-19T10:59:01","guid":{"rendered":"http:\/\/eyjolfur.is\/?page_id=539"},"modified":"2026-02-21T08:36:34","modified_gmt":"2026-02-21T08:36:34","slug":"jofurstiminn","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/eyjolfur.is\/?page_id=539","title":{"rendered":"J\u00f6furst\u00edminn"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"https:\/\/photos.app.goo.gl\/yXMqsm7Rsz3owTnr5\">https:\/\/photos.app.goo.gl\/yXMqsm7Rsz3owTnr5<\/a><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/photos.app.goo.gl\/31jBdXFaF2kjhjFT6\">https:\/\/photos.app.goo.gl\/31jBdXFaF2kjhjFT6<\/a><\/p>\nngg_shortcode_0_placeholder\n<p>&nbsp;<br \/>\nJ\u00f6fur hf. \u2013 T\u00e9kkneska bifrei\u00f0aumbo\u00f0i\u00f0 hf.<\/p>\n<p>Flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 \u00e9g byrja\u00f0i a\u00f0 vinna hj\u00e1 Endursko\u00f0unarskrifstofu Bj\u00f6rns E. \u00c1rnasonar \u00ed Tjarnarg\u00f6tu 16, var \u00e9g sendur \u00ed T\u00e9kkneska bifrei\u00f0aumbo\u00f0i\u00f0 hf. sem \u00fe\u00e1 var til h\u00fasa vi\u00f0 hli\u00f0 Oddfellow h\u00fassins vi\u00f0 Vonarstr\u00e6ti. M\u00e9r var \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 taka vi\u00f0 b\u00f3kun fylgiskjala, en Gar\u00f0ar Valdimarsson haf\u00f0i sinnt \u00feessu fr\u00e1 endursko\u00f0unarskrifstofu Ragnars \u00d3lafssonar. Gar\u00f0ar \u00e1tti heima \u00ed Hei\u00f0arger\u00f0i \u00ed \u00e6sku, var samfer\u00f0a m\u00e9r \u00ed R\u00e9ttarholtssk\u00f3la, Verslunarsk\u00f3la, og svo \u00ed endursko\u00f0un. Hann giftist bekkjarsystur okkar \u00far Versl\u00f3, Brynhildi Brynj\u00f3lfsd\u00f3ttur \u2013 en h\u00fan var k\u00f6llu\u00f0 Bimma. M\u00e9r \u00fe\u00f3tti \u00feetta svo fallegt g\u00e6lunafn, a\u00f0 \u00feegar \u00e9g eigna\u00f0ist m\u00edna Brynhildi, kalla\u00f0i \u00e9g hana Bimmu, og \u00fea\u00f0 g\u00e6lunafn festist vi\u00f0 hana.<\/p>\n<p>Ragnar J. Ragnarsson var \u00e1 \u00feessum t\u00edma a\u00f0 taka vi\u00f0 stj\u00f3rn T\u00e9kkneska bifrei\u00f0aumbo\u00f0sins af f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum, Ragnari J\u00f3hannessyni og hann vildi flytja b\u00f3khalds- og uppgj\u00f6rsvinnu fr\u00e1 Ragnari \u00d3lafssyni til Sveins J\u00f3nssonar, sem var annar tveggja eigenda a\u00f0 Endursko\u00f0unarskrifstofu Bj\u00f6rns E. \u00c1rnasonar. Sveinn var \u2013 og er \u2013 giftur El\u00edsabetu Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur (Lellu), en br\u00f3\u00f0ir hennar, Karl Gu\u00f0mundsson, st\u00fdr\u00f0i \u00e1 \u00feessum t\u00edma Skodab\u00fa\u00f0inni.<\/p>\n<p>Sk\u00f6mmu eftir a\u00f0 \u00e9g t\u00f3k vi\u00f0 b\u00f3kun, var fyrirt\u00e6ki\u00f0 flutt \u00far Vonarstr\u00e6ti \u00ed Au\u00f0brekku 44-46, glerh\u00fasi\u00f0 svokalla\u00f0a. Starfsemi \u00ed Au\u00f0brekku opna\u00f0i 30. j\u00fan\u00ed 1969, og voru f\u00e9l\u00f6gin framan af \u00ferj\u00fa, \u00fe.e. bifrei\u00f0aumbo\u00f0i\u00f0, Skodab\u00fa\u00f0in og Skodaverkst\u00e6\u00f0i\u00f0. \u00deanga\u00f0 f\u00f3r \u00e9g til a\u00f0 sj\u00e1 um b\u00f3khaldi\u00f0 \u00e1 spjaldav\u00e9l. Me\u00f0an \u00e9g sinnti b\u00f3karastarfi l\u00e1na\u00f0i Ragnar m\u00e9r oft b\u00edl til a\u00f0 fer\u00f0ast \u00e1 milli, sem kom m\u00e9r mj\u00f6g vel.<\/p>\n<p>En \u00e1ri\u00f0 1975 (e\u00f0a 1976) var\u00f0 hallarbylting, eldri eigendum rutt til hli\u00f0ar me\u00f0 aukningu hlutafj\u00e1r, og vi\u00f0 t\u00f3ku \u00fer\u00edr a\u00f0aleigendur, Ragnar J. Ragnarsson, \u00d3li P\u00e9tur Fri\u00f0\u00fej\u00f3fsson og Svavar Egilsson. (Svavar var \u00e1 \u00feessum t\u00edma giftur Sirr\u00fd, Sigr\u00ed\u00f0i Margr\u00e9ti, sem var systir Lellu. Sirr\u00fd s\u00e1 um Stundina okkar \u00ed Sj\u00f3nvarpinu). Eldri eigendur h\u00e9ldu hlutaf\u00e9 framan af, en \u00f3verulegu hlutfalli heildareignar. Karl Gu\u00f0mundsson l\u00e9st sviplega \u00ed fangaklefa l\u00f6greglunnar \u00e1ri\u00f0 1974, og \u00e1 endanum voru f\u00e9l\u00f6gin \u00ferj\u00fa sameinu\u00f0 undir nafni T\u00e9kkneska bifrei\u00f0aumbo\u00f0sins hf.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Ragnar \u00e1ttum sameiginlega m\u00f3deladellu, \u00e9g var farinn \u00far flugm\u00f3delum yfir \u00ed b\u00edlam\u00f3del, en hann alfari\u00f0 \u00ed flugm\u00f3delum. Hann \u00e1samt Baldri Sveinssyni og fleirum stofnu\u00f0u IPMS \u2013 \u00cdslensku plastm\u00f3delsamt\u00f6kin, sem \u00e9g var\u00f0 svo f\u00e9lagi \u00ed, og a\u00f0 mig minnir endursko\u00f0andi fyrir.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 \u00e9g h\u00e6tti hj\u00e1 Endursko\u00f0unarskrifstofu Bj\u00f6rns E. \u00c1rnasonar og f\u00f3r a\u00f0 vinna hj\u00e1 R\u00edkisendursko\u00f0un, var \u00fea\u00f0 helst plastm\u00f3deldellan sem vi\u00f0h\u00e9lt sambandi okkar Ragnars.<br \/>\nSvo var \u00fea\u00f0 a\u00f0 Ragnar hringdi til m\u00edn \u00ed R\u00edkisendursko\u00f0un og vildi f\u00e1 a\u00f0 hitta mig \u00ed h\u00e1degismat, og s\u00e1 fundur var \u00f6rlagafundur \u00e1 fleiri en einn h\u00e1tt. \u00dear bau\u00f0 hann m\u00e9r skrifstofustj\u00f3rastarf \u00ed sta\u00f0 \u00c1sgeirs Ingvarssonar, sem \u00fear var fyrir. Hann bau\u00f0 m\u00e9r gott kaup u.\u00fe.b. 50% h\u00e6rra en \u00e9g haf\u00f0i hj\u00e1 R\u00edkinu, og \u00e1n \u00feess a\u00f0 r\u00e1\u00f0f\u00e6ra mig vi\u00f0 Rannveigu, e\u00f0a nokkurn, \u00fe\u00e1\u00f0i \u00e9g bo\u00f0i\u00f0. R\u00e9tt er a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 \u00e9g var a\u00f0 koma upp okkar fyrstu \u00edb\u00fa\u00f0 \u00ed Engjaseli 13 \u00e1 \u00feessum t\u00edma, og sk\u00edtblankur.<br \/>\n4. j\u00fal\u00ed 1976 h\u00f3f \u00e9g svo st\u00f6rf hj\u00e1 T\u00e9kkneska bifrei\u00f0aumbo\u00f0inu hf. sem skrifstofustj\u00f3ri, sem var \u00ed raun b\u00f3kara- og gjaldkerastarf, undir stj\u00f3rn \u00feeirra \u00feriggja, Ragnars, \u00d3la og Svavars.<br \/>\n\u00c1ri\u00f0 1976 var met\u00e1r \u00ed s\u00f6lu Skoda, og eigendunum \u00feremur fannst gaman a\u00f0 vera til. \u00d3li og Svavar voru ekki g\u00f3\u00f0ir stj\u00f3rnendur, voru hins vegar uppteknir af \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa fasteignir \u00ed mi\u00f0b\u00e6 Reykjav\u00edkur ofl., allt fyrir peninga fyrirt\u00e6kisins. F\u00e9 sem \u00fear var \u00e1 lausu var \u00ed raun l\u00e1nsf\u00e9 fr\u00e1 T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu, \u00fev\u00ed allir b\u00edlarnir voru keyptir \u00ed USD og me\u00f0 \u00e1rs gjaldfresti. \u00c9g benti Ragnari \u00e1, a\u00f0 gengisbreytingar sem \u00fe\u00e1 voru \u00f6rar, \u00e6ttu eftir a\u00f0 \u00e9ta upp \u00feann \u201egr\u00f3\u00f0a\u201c sem g\u00f3\u00f0\u00e6ri\u00f0 g\u00e6fi, en \u00fev\u00ed var l\u00edtill gaumur gefinn.<\/p>\n<p>Alfa Romeo umbo\u00f0i\u00f0 b\u00e6ttist vi\u00f0 1977, og eitt skilyr\u00f0a fyrir \u00fev\u00ed var breyting \u00e1 nafni f\u00e9lagsins (e\u00f0lilega). Svavar stakk upp \u00e1 nafninu J\u00f6fur, sem var\u00f0 fyrir valinu. \u00c1fram seldust b\u00edlar vel \u00e1ri\u00f0 1977, \u00fe\u00e1 mest Skoda Amigo, en \u00fea\u00f0 nafn var \u00edslenskt marka\u00f0snafn, \u00e6tla\u00f0 til a\u00f0 lyfta upp Skoda v\u00f6rumerkinu. Voru s\u00e9rst\u00f6k Amigo merki framleidd fyrir okkur og l\u00edmd \u00e1 b\u00edlana.<br \/>\nSt\u00e6rsti kaupandi b\u00edla \u00e1rin 1976 og 1977 var B\u00edlaleiga Akureyrar, en Kennedy br\u00e6\u00f0ur svok\u00f6llu\u00f0u \u00e1ttu og r\u00e1ku b\u00edlaleiguna. Kynntist \u00e9g \u00feeim \u00f6llum \u00e1g\u00e6tlega, en mest vorum vi\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00ed samskiptum vi\u00f0 Villa (Vilhelm \u00c1g\u00fastsson). Hinn n\u00fdi Skodi, Skoda 120L, e\u00f0a Skoda Amigo, reyndist vandr\u00e6\u00f0agripur \u00e1 \u00edslenskum vegum, sem \u00fe\u00e1 voru mest malarvegir, og \u00feau vandam\u00e1l komu e\u00f0lilega fyrst fram hj\u00e1 B\u00edlaleigu Akureyrar. V\u00e9lin var a\u00f0 aftanver\u00f0u eins og \u00e1\u00f0ur, en loftinntak \u00e1 v\u00e9l var innan \u00far v\u00e9larr\u00fami, me\u00f0an eldri b\u00edllinn var me\u00f0 \u201et\u00e1lkn\u201c \u00e1 hli\u00f0um sem b\u00e6\u00f0i h\u00e9lt \u00fer\u00fdstingi og hreinna lofti \u00ed v\u00e9larh\u00fasi. \u00cd n\u00fdja b\u00edlnum var undir\u00fer\u00fdstingur \u00ed v\u00e9larr\u00fami og v\u00e9lin fylltist \u00e1 mj\u00f6g sk\u00f6mmum t\u00edma af ryki, sem sm\u00e1m saman var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 h\u00fan br\u00e6ddi \u00far s\u00e9r.<\/p>\n<p>En um \u00feetta leyti, seint 1977 og \u00e1 \u00e1rinu 1978 r\u00e6ttust m\u00ednir sp\u00e1d\u00f3mar, ekki var til peningur til a\u00f0 grei\u00f0a skuldir vi\u00f0 Motokov, en \u00fea\u00f0 var s\u00f6lua\u00f0ilinn fyrir Skoda verksmi\u00f0jurnar.<br \/>\nSvavari fannst ekkert gaman lengur og h\u00e6tti, \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 ver\u00f0a st\u00f3r \u00e1 St\u00f6\u00f0 2, en f\u00f3r s\u00ed\u00f0an \u00far landi \u00feegar \u00fea\u00f0 gekk ekki, og spur\u00f0ist s\u00ed\u00f0ast til hans \u00ed n\u00e1grenni vi\u00f0 J\u00f3n \u00d3ttar \u00ed Los Angeles.<br \/>\n\u00d3li h\u00e9lt \u00e1fram, en n\u00fa dr\u00f3st \u00e9g inn \u00ed hringi\u00f0una, og var lj\u00f3st a\u00f0 Ragnar vildi frekar treysta \u00e1 mig en \u00d3la \u00ed bar\u00e1ttunni vi\u00f0 T\u00e9kkana. \u00c9g lag\u00f0i fram till\u00f6guna sem \u00e1 endanum var\u00f0 sam\u00feykkt, a\u00f0 vi\u00f0 myndum ekkert grei\u00f0a \u00feeim, nema me\u00f0 reikningum fr\u00e1 okkur. Vi\u00f0 innheimtum hj\u00e1 \u00feeim \u00e1byrg\u00f0arvinnu, augl\u00fdsingakostna\u00f0 ofl., og \u00e1 endanum f\u00f3r \u00feannig a\u00f0 v\u00f6rukaup tveggja mets\u00f6lu\u00e1ra voru alfari\u00f0 greidd me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti.<br \/>\nVi\u00f0 nutum \u00feess, a\u00f0 um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a s\u00f3s\u00edal\u00edskt r\u00edkisreki\u00f0 fyrirt\u00e6ki, \u00fear sem starfsmenn h\u00f6f\u00f0u l\u00edtinn hvata til a\u00f0 sinna starfi s\u00ednu vel, en vi\u00f0 g\u00e1tum hins vegar \u00fatb\u00fai\u00f0 hvatningarpakka fyrir einstaklingana, pakka sem ekki voru st\u00f3rir \u00e1 okkar m\u00e6likvar\u00f0a, en risavaxnir \u00ed \u00feeirra umhverfi. \u00de\u00e1 pakka m\u00e6tti kannske kalla Yankee Dollar. Einnig saka\u00f0i ekki, a\u00f0 T\u00e9kkneska fyrirt\u00e6ki\u00f0 var svo deildaskipt, a\u00f0 enginn virtist hafa heildaryfirs\u00fdn yfir vi\u00f0skiptin vi\u00f0 okkur. Vi\u00f0 keyptum b\u00edlana af einu r\u00edkisfyrirt\u00e6ki, trygg\u00f0um b\u00edlana hj\u00e1 \u00f6\u00f0ru fyrirt\u00e6ki, og innheimtum af \u00fev\u00ed fyrirt\u00e6ki sj\u00f3tj\u00f3n svok\u00f6llu\u00f0 (tj\u00f3n \u00ed flutningi fr\u00e1 verksmi\u00f0ju til \u00cdslands), sem \u00fe\u00fdddi a\u00f0 b\u00edlarnir voru allir st\u00f3rskemmdir vi\u00f0 m\u00f3tt\u00f6ku \u2013 \u00e1 papp\u00edrunum. Vi\u00f0 \u00e1ttum auk \u00feess vi\u00f0skipti a\u00f0ra deild sem s\u00e1 um \u00e1byrg\u00f0arvi\u00f0ger\u00f0ir, og sama sagan \u00fear, flestir b\u00edlarnir reyndust me\u00f0 \u00farbr\u00e6ddar v\u00e9lar \u2013 \u00e1 papp\u00edrnum. Svo var marka\u00f0sdeildin \u00e1byrg fyrir endurgrei\u00f0slu augl\u00fdsinga- og s\u00fdningarkostna\u00f0ar, og vi\u00f0 fengum gjarna tr\u00f6llvaxna reikninga fr\u00e1 augl\u00fdsingami\u00f0lum og augl\u00fdsingastofum sem voru nota\u00f0ir \u00ed \u00feeim tilgangi.<\/p>\n<p>\u00deessi gl\u00edma vi\u00f0 T\u00e9kkana t\u00f3k miki\u00f0 \u00e1 og talsver\u00f0an t\u00edma, og \u00fev\u00ed mi\u00f0ur lei\u00f0 fj\u00f6lskyldan fyrir \u00fea\u00f0, b\u00e6\u00f0i t\u00edma- og peningalega. Svo hart lag\u00f0i \u00e9g mig fram vi\u00f0 a\u00f0 halda fyrirt\u00e6kinu \u00e1 floti, a\u00f0 \u00e9g l\u00e1na\u00f0i ve\u00f0 \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 okkar Rannveigar \u00ed Engjaseli til a\u00f0 bjarga lausafj\u00e1rst\u00f6\u00f0u f\u00e9lagsins. \u00cd lok gl\u00edmunnar sag\u00f0i Ragnar vi\u00f0 mig a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri h\u00e9r me\u00f0 or\u00f0inn 30% eigandi \u00ed f\u00e9laginu, sem var kannske 30% af engu \u00f6\u00f0ru en v\u00e6ntingum \u00fe\u00e1, en gladdi mig samt.<\/p>\n<p>Sm\u00e1m saman f\u00e6r\u00f0ist \u00e9g \u00far skrifstofustj\u00f3rast\u00f6\u00f0u \u00ed framkv\u00e6mdastj\u00f3rast\u00f6\u00f0u, \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkur formleg breyting f\u00e6ri fram. \u00c9g leiddi marka\u00f0sm\u00e1l b\u00edlageirans, stj\u00f3rna\u00f0i innkaupum ofl., me\u00f0an Ragnar sinnti meira dekkjadeildinni.<\/p>\n<p>Svo r\u00e9\u00f0i tilviljun \u00fev\u00ed a\u00f0 Chrysler, Dodge og Plymouth kom til okkar. \u00deannig var, a\u00f0 vi\u00f0 Ragnar ver\u00f0launu\u00f0um okkur \u00ed lok gl\u00edmunnar me\u00f0 tveimur jeppum, Dodge Ramcharger 1979 \u00e1rger\u00f0, sem vi\u00f0 keyptum af V\u00f6kli sem \u00fe\u00e1 haf\u00f0i umbo\u00f0i\u00f0. Annar \u00feeirra var tv\u00edlitur gr\u00e6nn og me\u00f0 318 v\u00e9l, hinn br\u00fann og gulllita\u00f0ur me\u00f0 360 v\u00e9l. A\u00f0 till\u00f6gu Ragnars dr\u00f3gum vi\u00f0 um hver fengi hvern, og \u00e9g dr\u00f3 \u00feann br\u00fana.<br \/>\n\u00dea\u00f0 var svo \u00e1 \u00e1rinu 1982 a\u00f0 \u00e9g rak augun \u00ed svartan 1981 Ramcharger \u00ed Eimskips portinu sem \u00fe\u00e1 var vi\u00f0 Borgart\u00fan (Borgarsk\u00e1li). Mig langa\u00f0i \u00ed gripinn, og renndi \u00ed \u00c1rm\u00falann \u00fear sem V\u00f6kull var til h\u00fasa, og hitti \u00fear J\u00f3n H\u00e1kon Magn\u00fasson, sem \u00e9g kynntist \u00feegar vi\u00f0 keyptum jeppana. J\u00f3n H\u00e1kon sag\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed mi\u00f0ur hef\u00f0i \u00feessi b\u00edll veri\u00f0 panta\u00f0ur fyrir Sissa bakara og \u00e9g g\u00e6ti ekki fengi\u00f0 hann. \u00c9g veitti flj\u00f3tt athygli hva\u00f0 J\u00f3n H\u00e1kon var stressa\u00f0ur og dapur \u00ed yfirbrag\u00f0i og eftir a\u00f0 vi\u00f0 vorum b\u00fanir a\u00f0 r\u00e6\u00f0a b\u00edlabisnessinn almennt \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 reifa st\u00f6\u00f0u V\u00f6kuls. Ef \u00e9g man r\u00e9tt, var \u00feetta \u00e1 fimmtudegi, og kom fram \u00ed spjalli m\u00ednu vi\u00f0 J\u00f3n H\u00e1kon a\u00f0 n\u00e6sta m\u00e1nudag voru Tollheimtumenn b\u00fanir a\u00f0 bo\u00f0a komu s\u00edna til a\u00f0 loka fyrirt\u00e6kinu vegna vanskila opinberra gjalda. \u00c9g spur\u00f0i hann hvort hann vildi ekki losna undan \u00feessu \u00f6llu, og hvort vi\u00f0 \u00e6ttum ekki a\u00f0 r\u00e6\u00f0a saman vi\u00f0 Ragnar, sem hann \u00fe\u00e1\u00f0i \u2013 feginsamlega. Var skellt \u00e1 fundi, \u00e1 laugardeginum m\u00e6tti me\u00f0 J\u00f3ni H\u00e1koni V\u00edglundur \u00deorsteinsson, n\u00e1fr\u00e6ndi minn. Vi\u00f0 fr\u00e6ndur gl\u00edmdum, og samkomulag var kl\u00e1ra\u00f0, og vi\u00f0 keyptum af \u00feeim lager og fleira r\u00e9tt undan fall\u00f6xinni. Talbot umbo\u00f0i\u00f0 var hj\u00e1 V\u00f6kli, en kom ekki me\u00f0, og raunar logna\u00f0ist Talbot \u00fat af flj\u00f3tlega eftir \u00feetta.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00e1rinu 1986 setti \u00e9g mig \u00ed samband vi\u00f0 Sigur\u00fe\u00f3r Margeirsson sem \u00fe\u00e1 var a\u00f0aleigandi Hafrafells hf., sem haf\u00f0i umbo\u00f0 fyrir Peugeot og Talbot b\u00edla, en hann f\u00e9kk umbo\u00f0i\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndu eftir a\u00f0 V\u00f6kull h\u00e6tti starfsemi. Sta\u00f0an hj\u00e1 honum var ekkert s\u00e9rlega g\u00f3\u00f0, og \u00e1 endanum n\u00e1\u00f0i \u00e9g samkomulagi vi\u00f0 hann um a\u00f0 hann fengi vinnu hj\u00e1 m\u00e9r me\u00f0an hann hef\u00f0i starfsorku og \u00e9g fengi\u00f0 f\u00e9lagi\u00f0. Fasteign f\u00e9lagsins vi\u00f0 Vagnh\u00f6f\u00f0a var seld, sem dug\u00f0i fyrir skuldum. \u00c9g gekk skriflega fr\u00e1 samkomulagi vi\u00f0 hann var\u00f0andi starf hans, sem reyndist honum vel \u00feegar til st\u00f3\u00f0 a\u00f0 reka hann eftir a\u00f0 \u00e9g h\u00e6tti hj\u00e1 f\u00e9laginu. \u00deess m\u00e1 geta a\u00f0 l\u00f6gma\u00f0ur Sigur\u00fe\u00f3rs var Gu\u00f0j\u00f3n \u00c1rmann J\u00f3nsson, og Sigur\u00fe\u00f3r tr\u00fa\u00f0i m\u00e9r fyrir \u00fev\u00ed l\u00f6ngu seinna a\u00f0 Gu\u00f0j\u00f3n hef\u00f0i vilja\u00f0 ganga inn \u00ed samkomulagi\u00f0 vi\u00f0 mig &#8211; a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00e1 m\u00f3ti \u00f6llum si\u00f0areglum l\u00f6gmanna. Gu\u00f0j\u00f3n \u00c1rmann kemur s\u00ed\u00f0ar vi\u00f0 s\u00f6gu \u00ed lok \u00feessa \u00f6rlagar\u00edka kafla.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1987 eignast Chrysler American Motors, og feitasti bitinn \u00fear var Jeep. Jeep Cherokee haf\u00f0i veri\u00f0 vins\u00e6ll \u00e1 \u00cdslandi og umbo\u00f0i\u00f0 var hj\u00e1 Agli Vilhj\u00e1lmssyni hf. \u00e1 \u00feeim t\u00edma, og \u00e9g byrja\u00f0i strax a\u00f0 vinna \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 \u00fea\u00f0 umbo\u00f0. L\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingahr\u00e6\u00f0sla Bandar\u00edkjamanna taf\u00f0i \u00fea\u00f0 m\u00e1l fram til \u00e1rsins 1989, og m\u00e1 segja a\u00f0 \u00e9g hafi neglt m\u00e1li\u00f0 \u00e1 Evr\u00f3pufundi sem haldinn var \u00ed kastala \u00ed Sviss \u00fea\u00f0 \u00e1r. \u00c1 \u00feessari r\u00e1\u00f0stefnu me\u00f0al annarra Robert Lutz, og svo Lee Iacocca, sem var go\u00f0s\u00f6gn \u00ed vi\u00f0skiptaheiminum vestan hafs \u00e1 \u00feessum t\u00edma. Haldinn var Gala kv\u00f6ldver\u00f0ur, \u00fear sem hann var vi\u00f0 h\u00e1bor\u00f0i\u00f0, og \u00e9g sat \u00e1 milli Carroll Shelby og bandar\u00edsks yfirmanns Evr\u00f3pudeildar sem tr\u00falega var Mike Hammes. Tv\u00f6 e\u00f0a \u00ferj\u00fa langbor\u00f0 l\u00e1gu \u00fat fr\u00e1 h\u00e1bor\u00f0i og \u00e9g var \u00feri\u00f0ji ma\u00f0ur fr\u00e1 h\u00e1bor\u00f0i, og man a\u00f0 \u00e9g var a\u00f0 vir\u00f0a fyrir m\u00e9r st\u00f3rstj\u00f6rnuna. \u00c9g veitti athygli bor\u00f0si\u00f0um, sem voru amer\u00edskir og ekkert s\u00e9rlega gl\u00e6silegir, og var a\u00f0 velta v\u00f6ngum yfir \u00fev\u00ed hva\u00f0 v\u00e6ri svona merkilegt vi\u00f0 \u00feennan gamla kall. En svo st\u00f3\u00f0 hann upp og h\u00e9lt r\u00e6\u00f0u, og \u00fe\u00e1 vissi \u00e9g hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var. Hann var sk\u00f6rulegur, beinskeyttur og skorinor\u00f0ur \u2013 \u201estraight shooter\u201c eins og amer\u00edkaninn kallar \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>En Shelby var flottur, \u00ed k\u00farekast\u00edgv\u00e9lum og me\u00f0 svartan k\u00farekahatt (v\u00e6ntanlega Stetson) og tala\u00f0i me\u00f0 nettum Su\u00f0urr\u00edkjahreim. Hann var l\u00edka go\u00f0s\u00f6gn, en \u00e1 annan h\u00e1tt. Hann haf\u00f0i, \u00fer\u00e1tt fyrir me\u00f0f\u00e6ddan hjartagalla, stunda\u00f0 kappakstur, m.a. \u00ed 24 t\u00edma Le Mans kappakstrinum. Fr\u00e6gastur er hann \u00fe\u00f3 fyrir h\u00f6nnun og breytingar \u00e1 b\u00edlum. Shelby haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur veri\u00f0 \u00ed samstarfi vi\u00f0 Ford, og flestir kannast vi\u00f0 Shelby Mustang b\u00edla. \u00dea\u00f0 samstarf var \u00e1 enda \u00feegar \u00feetta var og hann elti Lee Iacocca sem l\u00edka var \u00e1\u00f0ur hj\u00e1 Ford, yfir til Chrysler. \u00c9g byrja\u00f0i \u00e1 a\u00f0 spyrja hann hvernig st\u00e6\u00f0i l\u00f6gs\u00f3kn \u00e1 Ford, sem \u00e9g haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 skrifa\u00f0 um, en Ford haf\u00f0i teki\u00f0 s\u00e9r heiti\u00f0 GT-500 sem Shelby taldi sig eiga. Hann taldi l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 sami\u00f0 yr\u00f0i utan r\u00e9ttarhalds, eins og gjarna er si\u00f0ur, og \u00ed framhaldinu var skrafa\u00f0 um \u00fdmislegt. Hann spur\u00f0i mig m.a. hvort \u00e9g g\u00e6ti selt DeTomaso Pantera, en hann \u00e1tti nokkra svolei\u00f0is liggjandi \u00f3selda. \u00deegar \u00e9g spur\u00f0i hvort \u00feeir v\u00e6ru g\u00f3\u00f0ir \u00ed snj\u00f3, skildi hann a\u00f0 \u00feetta \u00e6tti illa vi\u00f0. Hann sag\u00f0i m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00f3ttir hans sem n\u00fdlega hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 sautj\u00e1n \u00e1ra (minnir mig \u2013 frekar en sext\u00e1n), hef\u00f0i fengi\u00f0 \u201en\u00fdjan\u201c 1966 Shelby Mustang GT-350 sem hann l\u00e9t byggja handa henni. Hann sag\u00f0i l\u00edka fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feegar Iacocca vildi f\u00e1 hann til a\u00f0 breyta Mustang b\u00edlum hef\u00f0i hann veri\u00f0 tregur til, \u00fev\u00ed honum fannst \u00feetta b\u00edll fyrir einkaritara (It\u00b4s a secretary car). En b\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1, og enn \u00ed dag eru Shelby Mustang eftirs\u00f3ttir og eftir \u00fev\u00ed d\u00fdrir b\u00edlar. \u00d6nnur skemmtileg yfirl\u00fdsing kom fr\u00e1 honum \u00feegar vi\u00f0 vorum a\u00f0 spjalla, en hann sag\u00f0ist aldrei myndi f\u00e1st til a\u00f0 \u00fatb\u00faa b\u00edl me\u00f0 beygjur \u00e1 \u00f6llum hj\u00f3lum &#8211; fannst svolei\u00f0is nokku\u00f0 alger f\u00e1sinna. \u00c9g man \u00feegar hann st\u00f3\u00f0 upp fr\u00e1 bor\u00f0inu sag\u00f0i hann \u201eI think I\u00b4m \u00b4bout ready to hit the sack now\u201c \u2013 og Mike Hammes sem sat m\u00e9r \u00e1 vinstri h\u00f6nd sag\u00f0i \u201eAs American as apple pie\u201c \u2013 og haf\u00f0i gaman af. En s\u00e9rkennilegast fannst m\u00e9r form\u00fala sem hann af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um vildi kenna m\u00e9r. S\u00fa form\u00fala sneri a\u00f0 sambandi karls og konu! Ekki veit \u00e9g hva\u00f0 var\u00f0 til \u00feess, \u00fev\u00ed ekkert haf\u00f0i veri\u00f0 minnst \u00e1 sl\u00edk m\u00e1l, en eitthva\u00f0 hefur \u00feetta seti\u00f0 \u00ed honum. S\u00fa form\u00fala var \u00feannig a\u00f0 aldur karlmannsins \u00e6tti a\u00f0 deilast me\u00f0 tveimur \u2013 og s\u00ed\u00f0an leggja sj\u00f6 vi\u00f0. Ef konan er yngri en \u00fea\u00f0, myndi sambandi\u00f0 bara alls ekki ganga.<br \/>\nEn \u00e1 \u00feessari r\u00e1\u00f0stefnu n\u00e1\u00f0i \u00e9g a\u00f0 tryggja sambandi\u00f0 vi\u00f0 Mike Hammes, yfirmann Evr\u00f3pudeildar, \u00feannig a\u00f0 stuttu s\u00ed\u00f0ar var umbo\u00f0i\u00f0 fyrir Jeep flutt til okkar. \u00dea\u00f0 ska\u00f0a\u00f0i ekki a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um selt grimmt af Dodge Aries \u00e1 \u00feessum t\u00edma, meira en allar a\u00f0rar nor\u00f0urlanda\u00fej\u00f3\u00f0irnar til samans.<\/p>\n<p>\u00cdslendingar hafa gjarna veri\u00f0 taldir \u201etarnamenn\u201c, har\u00f0duglegir \u00feegar \u00e1 \u00fearf a\u00f0 halda, annars latir, anna\u00f0 hvort blindfullir e\u00f0a skel\u00feunnir m\u00e1 l\u00edka kalla \u00fea\u00f0. \u00deannig reyndust b\u00edlavi\u00f0skiptin l\u00edka vera \u00e1 \u00feeim t\u00edma sem \u00e9g haf\u00f0i afskipti af \u00feeim fr\u00e1 \u00e1rinu 1976 til 1992. \u00c9g upplif\u00f0i t\u00edma allsn\u00e6gta og svo \u00e1tti \u00e9g varla fyrir salti \u00ed grautinn \u00feess \u00e1 milli. \u00deetta var b\u00e6\u00f0i besti og versti t\u00edmi hva\u00f0 var\u00f0ar starfsferilinn.<\/p>\n<p>\u00d3tal vi\u00f0skiptafer\u00f0ir f\u00f3r \u00e9g til \u00fatlanda \u00e1 J\u00f6furst\u00edmanum, til T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu, \u00cdtal\u00edu, Frakklands, Bretlands, \u00de\u00fdskalands, Sviss, Danmerkur, Bandar\u00edkjanna og v\u00ed\u00f0ar.<br \/>\nS\u00e9rkennilegt var a\u00f0 fara til T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu \u00e1 \u00feessum \u00e1rum, ma\u00f0ur \u00feurfti a\u00f0 fara um \u00ferj\u00fa eftirlitshli\u00f0 \u00e1 lei\u00f0 inn \u00ed landi\u00f0, og stundum \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 eiga whisky fl\u00f6sku til a\u00f0 r\u00e9tta landam\u00e6rav\u00f6r\u00f0um, sem allir voru \u00ed hermannaf\u00f6tum. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um alltaf me\u00f0 okkur dollara \u00ed rei\u00f0uf\u00e9, og var h\u00e6gt a\u00f0 selja \u00fe\u00e1 \u00e1 margf\u00f6ldu gengi \u00ed leigub\u00edlum, \u00e1 h\u00f3telum og v\u00ed\u00f0ar. Allt yfirbrag\u00f0i\u00f0 \u00ed Prague fannst m\u00e9r frekar gr\u00e1tt \u00e1 \u00feessum t\u00edma, og m\u00e9r fannst \u00e9g aldrei sj\u00e1 borgina me\u00f0 r\u00e9ttum augum &#8211; hermenn og f\u00e1t\u00e6kt alm\u00fagans skygg\u00f0i \u00e1 hana. \u00dea\u00f0 sem \u00e9g man a\u00f0 kom m\u00e9r \u00e1 \u00f3vart \u00fearna, var s\u00fa sta\u00f0reynd a\u00f0 enginn \u00feurfti a\u00f0 skila skattframtali. En r\u00edki\u00f0 \u00e1tti allt, allir voru a\u00f0 vinna hj\u00e1 r\u00edkinu, og \u00fear af lei\u00f0andi \u00feurfti enginn a\u00f0 skila framtali. En svarta hagkerfi\u00f0 var b\u00fdsna \u00e1berandi.<br \/>\nVi\u00f0 fer\u00f0u\u00f0umst v\u00ed\u00f0a um \u00cdtal\u00edu, b\u00e6\u00f0i til Alfa Romeo og Iveco, s\u00e1um R\u00f3m, Milano, Bari og fleiri borgir, R\u00f3m heilla\u00f0i mig mest.<br \/>\n\u00cd Frakklandi heims\u00f3ttum vi\u00f0 Peugeot, og s\u00e1um nokkrum sinnum st\u00f3rs\u00fdninguna \u00e1 b\u00edlum \u00fear. Auk \u00feess sinnti Ragnar sinni dellu \u00fear, t.d. sko\u00f0u\u00f0um vi\u00f0 Jodell flugv\u00e9l sem hann eigna\u00f0ist.<br \/>\nTil Bretlands f\u00f3rum vi\u00f0 m.a. a\u00f0 heims\u00e6kja Skodaumbo\u00f0i\u00f0, sem var lei\u00f0andi \u00ed s\u00f6lu Skoda utan T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu, fluttum m.a. inn fr\u00e1 \u00feeim E-l\u00ednu aukahluti \u00e1 Skoda 120-130.<br \/>\n\u00cd \u00de\u00fdskalandi var sett upp mi\u00f0st\u00f6\u00f0 fyrir Chrysler Europe, \u00feanga\u00f0 \u00feurftum vi\u00f0 a\u00f0 leita \u00e1 seinni stigum me\u00f0 ver\u00f0, \u00e1byrg\u00f0avinnu (Claim) og \u00fej\u00e1lfun starfsmanna. Einnig fer\u00f0u\u00f0umst vi\u00f0 Ragnar \u00feanga\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 reyndum a\u00f0 n\u00e1 Seat umbo\u00f0inu.<br \/>\nSviss heims\u00f3ttum vi\u00f0 l\u00edka, sem tengdist Chrysler, \u00fev\u00ed \u00fear voru haldnar r\u00e1\u00f0stefnur, tengdar st\u00f3rs\u00fdningu b\u00edla.<br \/>\nVi\u00f0 fluttum inn Alfa Romeo b\u00edla fr\u00e1 Danm\u00f6rku, og f\u00f3rum nokkrar fer\u00f0ir \u00feanga\u00f0, auk \u00feess a\u00f0 millilenda \u00e1 fer\u00f0um til og fr\u00e1 T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu, Frakklands og v\u00ed\u00f0ar.<br \/>\nTil Bandr\u00edkjanna f\u00f3rum vi\u00f0 til Chrysler \u00ed Dearborn, Michigan, \u00e1\u00f0ur en \u00de\u00fdskalandsapparati\u00f0 var sett \u00e1 laggirnar. \u00c9g man a\u00f0 m\u00e9r \u00fe\u00f3tti spennandi a\u00f0 koma \u00ed Chrysler Styling Dome, \u00fear fengum vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 &#8220;prototypu&#8221; af Dodge Stratus\/Chrysler Cirrus og af Dodge Pickup 1500 sem kom \u00e1 marka\u00f0 sem 1994 \u00e1rger\u00f0. \u00dear f\u00e9kk \u00e9g l\u00edka a\u00f0 keyra n\u00fdjan Chrysler Town &amp; Country bl\u00e6jub\u00edl. Eins heims\u00f3ttum vi\u00f0 \u00fear nokkra hj\u00f3labar\u00f0aframlei\u00f0endur, Firestone, Cooper og Ray Carr \u00ed Harrisonburg, Virginia, en \u00feeir seldu okkur s\u00f3lu\u00f0 dekk.<\/p>\n<p>\u00c9g kynntist m\u00f6rgum m\u00f6nnum fr\u00e1 m\u00f6rgum l\u00f6ndum, af T\u00e9kkunum myndu\u00f0ust sterkust tengsl vi\u00f0 Zbynek Pokorny, sem oft kom til okkar. \u00c9g keypti handa honum sams konar videov\u00e9l og fyrir sj\u00e1lfan mig, \u00fatvega\u00f0i honum VHS afrit af n\u00fdjustu amer\u00edsku b\u00ed\u00f3myndunum, Woman in Red man \u00e9g a\u00f0 var miki\u00f0 m\u00e1l fyrir hann. Sem d\u00e6mi um \u00e1standi\u00f0 sem r\u00edkti \u00ed T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu \u00e1 \u00feessum t\u00edma, fannst okkur Ragnari skr\u00edti\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 vildum kaupa eitthva\u00f0 handa konunni hans og kr\u00f6kkum \u00feegar Pokorny var hj\u00e1 okkur, \u00fe\u00e1 vildi hann f\u00e1 Svalafernur handa str\u00e1kunum s\u00ednum. \u00de\u00e1 kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 str\u00e1kurinn hans haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0alt\u00f6ffarinn \u00ed sk\u00f3lanum \u00feegar hann m\u00e6tti me\u00f0 Svalafernur me\u00f0 s\u00e9r.<\/p>\n<p>T\u00e9kkneska sendir\u00e1\u00f0i\u00f0 var \u00ed st\u00f6\u00f0ugum samskiptum vi\u00f0 okkur, \u00fear var sendiherra Joseph Rajchart lengst af. Leiddist m\u00e9r s\u00fa kv\u00f6\u00f0 a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 m\u00e6ta \u00fear \u00ed kokteilbo\u00f0, en sendir\u00e1\u00f0i\u00f0 bau\u00f0 \u00feanga\u00f0 \u00fdmsum emb\u00e6ttism\u00f6nnum og faram\u00e1m\u00f6nnum \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu, sem allir virtust vilja f\u00e1 fr\u00eda drykki, s\u00fdna sig og sj\u00e1 a\u00f0ra sem l\u00edka vildu fr\u00eda drykki.<\/p>\n<p>\u00c1g\u00e6t tengsl myndu\u00f0ust l\u00edka vi\u00f0 f\u00f3lk fr\u00e1 Chrysler, a\u00f0allega vi\u00f0 f\u00f3lk sem starfa\u00f0i \u00ed Evr\u00f3pu, Paul Clip, Horst Schmidt, og svo Susan (man ekki eftirnafni\u00f0), en h\u00fan var fr\u00e1 Canada. \u00d6r mannaskipti hj\u00e1 Peugeot ur\u00f0u til \u00feess a\u00f0 pers\u00f3nuleg tengsl ur\u00f0u ekki mj\u00f6g sterk.<\/p>\n<p>\u00dej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 t\u00f3k efnahagsd\u00fdfu 1990-1991 og b\u00edlasala dr\u00f3st harkalega saman. Mikil fj\u00e1rfesting \u00ed h\u00fasn\u00e6\u00f0i, a\u00f0st\u00f6\u00f0u og starfsf\u00f3lki sag\u00f0i til s\u00edn. \u00deegar \u00fear var komi\u00f0 vildi \u00e9g a\u00f0 gengi\u00f0 yr\u00f0i formlega fr\u00e1 m\u00ednum eignarhlut \u00ed f\u00e9laginu, en \u00fe\u00e1 sag\u00f0i Ragnar a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti 20%, en ekki \u00feau 30% sem m\u00e9r haf\u00f0i veri\u00f0 lofa\u00f0. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 yfirgefa fyrirt\u00e6ki\u00f0, sem \u00e9g ger\u00f0i \u00e1 fyrri hluta \u00e1rsins 1992.<\/p>\n<p>Kemur \u00fe\u00e1 aftur a\u00f0 l\u00f6gmanninum Gu\u00f0j\u00f3ni \u00c1rmanni J\u00f3nssyni, en hann gekk auglj\u00f3slega me\u00f0 \u00feann draum a\u00f0 reka bifrei\u00f0aumbo\u00f0. Hann \u00fatvega\u00f0i f\u00e9 \u00ed rekstur f\u00e9lagsins, kom svo \u00ed lj\u00f3s s\u00ed\u00f0ar a\u00f0 um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a &#8220;f\u00e9 \u00e1n hir\u00f0is&#8221;, \u00fe.e. peningar l\u00edfeyrissj\u00f3\u00f0s og st\u00e9ttarf\u00e9lags, en \u00fea\u00f0 er efni \u00ed annan kafla. L\u00f6ngu eftir a\u00f0 \u00e9g h\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 Grant Thornton f\u00e9kk \u00e9g \u00e1v\u00edsun upp \u00e1 \u00f6rf\u00e1 \u00fe\u00fasund sem grei\u00f0slu fyrir minn hlut &#8211; \u00fe\u00e1 \u00e1v\u00edsun reif \u00e9g.<\/p>\n<p>Vi\u00f0skiptatengsl eru g\u00f3\u00f0 og gild me\u00f0an vi\u00f0skiptin haldast, en sterkustu b\u00f6ndin myndu\u00f0ust vi\u00f0 starfsf\u00f3lki\u00f0, f\u00f3lki\u00f0 sem bygg\u00f0i upp g\u00f3\u00f0u t\u00edmana og lag\u00f0ist \u00e1 \u00e1rarnar me\u00f0 okkur \u00feegar \u00e1standi\u00f0 var b\u00e1gt. M\u00edn samskipti voru mest vi\u00f0 s\u00f6ludeild b\u00edla, Halli \u00fear eftirminnilegastur, \u00e1samt Hilmari B\u00f6\u00f0vars, svo og P\u00e9tri M\u00e1 Jenssyni, og J\u00f3hanni Halld\u00f3rssyni, en J\u00f3hann er sonur Halld\u00f3rs V. Sigur\u00f0ssonar, sem var R\u00edkisendursko\u00f0andi, og r\u00e9\u00f0 mig \u00feanga\u00f0 til starfa. Marga a\u00f0ra m\u00e1 nafngreina, Baldur og str\u00e1kana \u00e1 verkst\u00e6\u00f0inu, \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega Gu\u00f0mund Bjarnason, sem \u00e9g hef haldi\u00f0 sambandi vi\u00f0, Stebba, Bigga, Binna og str\u00e1kana \u00ed b\u00fa\u00f0inni, J\u00f3n Stef \u00ed dekkjunum, og svo K\u00fasta, Basta ofl \u00ed standsetningunni og marga fleiri. Og ekki m\u00e1 gleyma \u00fev\u00ed, a\u00f0 m\u00edn n\u00faverandi eiginkona, Steinunn starfa\u00f0i \u00fear sem einkaritari.<\/p>\n<p>Margar skemmtilegar s\u00f6gur m\u00e1 segja fr\u00e1 \u00feessum t\u00edma, \u00e9g tek h\u00e9r fyrst d\u00e6mi um \u00e1rlega sk\u00e1kkeppni sem vi\u00f0 h\u00e9ldum. \u00c9g lag\u00f0i til ver\u00f0laun sem voru e\u00f0alvisk\u00edflaska, og sj\u00e1lfur vann \u00e9g (held \u00e9g) allar keppnirnar sem haldnar voru. \u00c9g haf\u00f0i \u00fea\u00f0 fyrir venju a\u00f0 fara me\u00f0 ver\u00f0launin til Eir\u00edks, afgrei\u00f0slumanns \u00ed b\u00fa\u00f0inni og gefa honum, en margar g\u00f3\u00f0ar s\u00f6gur voru haf\u00f0ar eftir honum, en flestar \u00feeirra banna\u00f0ar innan sext\u00e1n. En starfsf\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i svo fyrir venju eftir sk\u00e1km\u00f3ti\u00f0, a\u00f0 \u00f3ska Eir\u00edki til hamingju me\u00f0 sigurinn, \u00fe\u00f3 hann t\u00e6ki ekki \u00fe\u00e1tt \u00ed m\u00f3tinu.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 d\u00e6mi um h\u00famorinn hj\u00e1 fyrirt\u00e6kinu tengist \u00feeirri venju okkar Ragnars a\u00f0 hittast \u00e1 M\u00falakaffi \u00e1 morgnana. \u00c9g kom \u00feessari hef\u00f0 \u00e1 til a\u00f0 koma honum fram \u00far r\u00faminu \u00e1 morgnana, en hann vildi helst sofa fram a\u00f0 h\u00e1degi. \u00c1 \u00feessum t\u00edma var skemmtista\u00f0urinn Hollywood \u00e1 h\u00e6\u00f0inni fyrir ofan M\u00falakaffi, og \u00feess vegna s\u00f6g\u00f0u g\u00e1rungarnir a\u00f0 vi\u00f0 f\u00e6rum \u00e1 hverju kv\u00f6ldi \u00ed Hollywood og skildum b\u00edlana eftir \u00fear \u00feanga\u00f0 til daginn eftir.<\/p>\n<p>Enn eitt d\u00e6mi\u00f0 um l\u00e9ttleikann \u00ed starfsf\u00f3lkinu tengist tveimur guttum sem vi\u00f0 k\u00f6llu\u00f0um &#8220;Dvergarnir&#8221;. \u00deeir heita H\u00f6r\u00f0ur Markan og Dav\u00ed\u00f0 Diego, voru b\u00e1\u00f0ir Vottar Jeh\u00f3va. Vi\u00f0 kynntumst \u00feeim fyrst \u00feegar \u00feeir bu\u00f0ust til a\u00f0 taka a\u00f0 s\u00e9r glugga\u00fevott hj\u00e1 okkur, og sm\u00e1m saman \u00fer\u00f3a\u00f0ist sambandi\u00f0 \u00feannig, a\u00f0 \u00feeir f\u00f3ru a\u00f0 setja skrautrendur \u00e1 b\u00edla, \u00fer\u00edfa n\u00fdja og nota\u00f0a b\u00edla osfrv. Stundum gekk illa a\u00f0 n\u00e1 til \u00feeirra, og oft m\u00e6ttu \u00feeir seint \u00e1 sta\u00f0inn, og s\u00f6lumennirnir stundum svekktir \u00e1 \u00feeim. Hilmar B\u00f6\u00f0vars t\u00f3k einu sinni \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim og var\u00f0 a\u00f0 or\u00f0i: &#8220;Koma \u00feeir &#8211; H\u00f6r\u00f0ur Markan &#8211; og Dav\u00ed\u00f0 ekkerta\u00f0markann&#8221;.<\/p>\n<p>Eitt enn d\u00e6mi um h\u00famorinn var afb\u00f6kun \u00e1 m\u00e1lsh\u00e6tti sem var\u00f0 svona \u00ed me\u00f0fer\u00f0 starfsmanna s\u00f6ludeildar: &#8220;Ekki er jakki frakki nema \u00e1 Halla s\u00e9&#8221;. En Halli kallinn var eins og hann or\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur &#8220;stuttur til hn\u00e9sins&#8221;.<\/p>\n<p>Upphaf alls \u00e6vint\u00fdrisins m\u00e1 rekja til fundarins \u00f6rlagar\u00edka me\u00f0 Ragnari \u00e1ri\u00f0 1976, og stundum hef \u00e9g velt fyrir m\u00e9r: &#8211; &#8220;Hva\u00f0 ef \u00e9g hef\u00f0i neita\u00f0, hvernig hef\u00f0i l\u00edfi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1&#8221; &#8230; en f\u00f6rum ekki n\u00e1nar \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 h\u00e9r. \u00de\u00f3 er lj\u00f3st a\u00f0 framhaldi\u00f0 hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 all verulega \u00f6\u00f0ruv\u00edsi, l\u00edf Rannveigar og barnanna l\u00edka, og aldrei hef\u00f0i \u00e9g kynnst Steinunni sem enn \u00feraukar me\u00f0 m\u00e9r, og \u00e9g hef\u00f0i heldur ekki eignast \u00fe\u00e1 Adda og \u00de\u00f3ri.<\/p>\n<p>Teki\u00f0 saman \u00e1 p\u00e1skum 2014 \u00ed lei\u00f0indave\u00f0ri og berkjub\u00f3lgu, b\u00e6tt inn nokkrum atri\u00f0um s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>Binni G\u00edsli f\u00e9kk mig n\u00fdlega (\u00e1g\u00fast 2019) til a\u00f0 rifja upp s\u00f6guna af &#8220;d\u00f6nsku Skoda b\u00edlunum, \u00e9g sendi honum nokkra punkta sem hann nota\u00f0i \u00ed eftirfarandi samantekt:<\/p>\n<p><strong>Jeg elsker min Skoda<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 er 1985. B\u00edlaeign landsmanna er 408 b\u00edlar \u00e1 hverja \u00fe\u00fasund \u00edb\u00faa, reyndar mest allra Nor\u00f0urlanda, og sala \u00e1 n\u00fdjum bifrei\u00f0um um 8 \u00fe\u00fasund b\u00edlar. Heildarf\u00f3lksb\u00edlaeign landsmanna haf\u00f0i \u00ed fyrsta skipti fari\u00f0 yfir 100 \u00fe\u00fasund \u00e1ri\u00f0 \u00e1\u00f0ur. Efnahags\u00e1standi\u00f0 var \u00f3st\u00f6\u00f0ugt \u00e1 \u00feessum t\u00edma. \u00cdslendingar h\u00f6f\u00f0u vanist gr\u00ed\u00f0arlegri ver\u00f0b\u00f3lgu, sem f\u00f3r \u00ed um 80% \u00e1ri\u00f0 1983 en var \u00ed kringum 30% n\u00e6stu tv\u00f6 \u00e1r \u00e1 eftir og var gengi kr\u00f3nunnar fellt reglulega me\u00f0 tilheyrandi \u00f3vissu fyrir neytendur. \u00d3vissan var svo mikil a\u00f0 \u00ed augl\u00fdsingu Bifrei\u00f0a og Landb\u00fana\u00f0arv\u00e9la hf. um Lada bifrei\u00f0ar var teki\u00f0 fram a\u00f0 \u201cVer\u00f0 vi\u00f0 birtingu augl\u00fdsingar\u201c v\u00e6ri 183.000 kr., enda gat ver\u00f0i\u00f0 breyst \u00e1 me\u00f0an kaupandinn var \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed umbo\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>Stemmingin \u00ed samf\u00e9laginu var \u00feannig a\u00f0 Skoda augl\u00fdsingarnar voru \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 \u00abVi\u00f0 h\u00f6fum n\u00e1\u00f0 sl\u00edkum \u201ekjarasamningum&#8221; um ver\u00f0 \u00e1 Skoda a\u00f0 s\u00ed\u00f0asta gengisfelling er h\u00e9r me\u00f0 afturk\u00f6llu\u00f0. Ver\u00f0i\u00f0 hefur aldrei veri\u00f0 hagst\u00e6\u00f0ara. EF \u00deETTA ERU EKKI EFNAHAGSR\u00c1\u00d0STAFANIR&#8230;.\u00de\u00c1 HVA\u00d0?\u00bb<\/p>\n<p>B\u00edlasala f\u00f3r h\u00e6gt af sta\u00f0 fyrstu m\u00e1nu\u00f0ina 1985. Talsver\u00f0ur samdr\u00e1ttur var\u00f0 \u00ed innflutningi og \u00e1 b\u00edlum fyrstu m\u00e1nu\u00f0i \u00e1rsins og var b\u00edlainnflutningurinn talsvert undir me\u00f0altali s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ra \u00e1 undan. Nokkrar birg\u00f0ir h\u00f6f\u00f0u safnast upp af n\u00fdjum Skoda \u00e1 hafnarbakkanum. Salan gekk ekki n\u00e6gilega vel og n\u00fa \u00feurfti a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0.<\/p>\n<p>Skoda b\u00edlar voru \u00f3d\u00fdrir og taldir \u00f3\u00e1rei\u00f0anlegir. \u00de\u00fa gast keypt \u00fe\u00e9r n\u00fdjan Skoda sem dug\u00f0i \u00ed m\u00f6rg \u00e1r \u00e1n vandr\u00e6\u00f0a. \u00de\u00fa gast l\u00edka fengi\u00f0 n\u00fdjan Skoda sem bila\u00f0i \u00e1 lei\u00f0inni heim \u00ed fyrstu \u00f6kufer\u00f0inni \u00far umbo\u00f0inu. \u00cdmyndin var kannski ekki s\u00fa besta. T.a.m. var eftirfarandi skrifa\u00f0 st\u00f3rum st\u00f6fum \u00ed Skoda augl\u00fdsingu: \u201eGetur veri\u00f0 a\u00f0 gamlir ford\u00f3mar valdi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa missir af bestu b\u00edlakaupunum \u00ed dag?\u201c<\/p>\n<p>\u00cd upphafi \u00e1rs kosta\u00f0i Toyota Corolla fr\u00e1 307 \u00fe\u00fasund kr\u00f3num og Skoda fr\u00e1 169 \u00fe\u00fasundum. \u00de\u00fa gast n\u00e6stum keypt tvo Skoda fyrir eina Corolla. Fiat Uno, sem haf\u00f0i komi\u00f0 \u00e1 marka\u00f0inn um mitt \u00e1r 1983 og var mest seldi b\u00edllinn \u00e1ri\u00f0 eftir, kosta\u00f0i 280 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur. Egill Vilhj\u00e1lmsson hf., umbo\u00f0sa\u00f0ila Fiat, augl\u00fdsti \u00feetta markvisst og \u00ed apr\u00edl 1984 var Fiat Uno t.a.m. augl\u00fdstur sem \u201emest seldi b\u00edllinn \u00e1 \u00cdslandi undanfarna m\u00e1nu\u00f0i\u201c.<\/p>\n<p>J\u00e1, Fiat Uno var mest seldi b\u00edllinn \u00e1 \u00cdslandi, og l\u00edka Lada og l\u00edka Subaru ef marka m\u00e1tti augl\u00fdsingarnar. B\u00edlaumbo\u00f0um var umhuga\u00f0 a\u00f0 eigna s\u00e9r \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00ed hugum neytenda a\u00f0 \u00feeir by\u00f0u upp\u00e1 vins\u00e6lasta b\u00edlinn. Ford Escort var augl\u00fdstur sem mest seldi b\u00edll heims og VW Golf sem mest seldi b\u00edllinn \u00ed Evr\u00f3pu. B\u00edlaumbo\u00f0i\u00f0 Hekla hf. augl\u00fdsti a\u00f0 \u201eSamkv\u00e6mt sk\u00fdrslu Hagstofunnar er mest seldi b\u00edllinn Mitsubishi\u201c. Kristinn Gu\u00f0nason hf. augl\u00fdsti a\u00f0 \u201eS\u00ed\u00f0astli\u00f0in \u00ferj\u00fa \u00e1r hefur BMW veri\u00f0 mest seldi b\u00edllinn fr\u00e1 Vestur \u00de\u00fdskalandi \u00e1 \u00cdslandi.\u201c Mazda 626 var augl\u00fdstur sem \u201elang mest seldi japanski b\u00edllinn \u00ed \u00de\u00fdskalandi\u201c. Ingvar Helgason hf. augl\u00fdsti a\u00f0 \u201eNISSAN er mest seldi japanski b\u00edllinn \u00ed Evr\u00f3pu.\u201c B\u00edlaumbo\u00f0i\u00f0 J\u00f6fur hf. t\u00f3k einnig \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feessu og augl\u00fdsti a\u00f0 \u201eSKODA hefur \u00e1rum saman veri\u00f0 mest seldi b\u00edll \u00ed Danm\u00f6rku.\u201c \u00dear st\u00f3\u00f0 l\u00edka \u201eAllir vita a\u00f0 Danir eru hags\u00fdnir menn og flj\u00f3tir a\u00f0 finna hvar \u00feeir gera bestu kaupin.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd Danm\u00f6rku? Skipti \u00fea\u00f0 \u00cdslendinga m\u00e1li hva\u00f0 a\u00f0 \u00feetta var mest seldi b\u00edllinn \u00ed Danm\u00f6rku? Danm\u00f6rku? Danm\u00f6rk hefur alltaf skipa\u00f0 s\u00e9rstakan sess \u00ed huga \u00cdslendinga. Danir stj\u00f3rnu\u00f0u okkur, k\u00fagu\u00f0u okkur og g\u00e1fa\u00f0asta f\u00f3lki\u00f0 f\u00f3r \u00feanga\u00f0 a\u00f0 mennta sig. Vi\u00f0 slettum \u00e1 \u00feessum t\u00edma meira \u00e1 d\u00f6nsku en vi\u00f0 gerum \u00e1 ensku \u00ed dag \u2013 s\u00e9rstaklega ef ma\u00f0ur var veraldarvanur og vel mennta\u00f0ur. Hvernig gat \u00fea\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 Skoda v\u00e6ri mest seldi b\u00edllinn \u00ed konungsveldinu. \u00deeir hlutu \u00fe\u00e1 a\u00f0 f\u00e1 betri Skoda en vi\u00f0 fengum til \u00cdslands.&nbsp;<\/p>\n<p>Var h\u00e6gt a\u00f0 nota \u00feessa tengingu betur? Hva\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 selja danska Skoda? \u00deeir hlj\u00f3ta a\u00f0 vera betri en \u00feessi \u201eB-vara\u201c sem veri\u00f0 er a\u00f0 selja \u00e1 \u00cdslandi. \u00deetta var reynt.<\/p>\n<p>\u00datb\u00fanir voru l\u00edmmi\u00f0ar sem l\u00edmdir voru \u00ed aftur gluggann me\u00f0 \u00e1letruninni \u201eJeg elsker \u2665 min Skoda\u201c \u2013 rautt hjarta me\u00f0 hv\u00edtum krossi \u00ed d\u00f6nsku f\u00e1nalitunum, &nbsp;\u2013 og svo var fari\u00f0 \u00ed augl\u00fdsingaherfer\u00f0. \u00dear kom m.a. fram a\u00f0 n\u00fa \u201ehefur okkur tekist a\u00f0 n\u00e1 \u00ed nokkra b\u00edla af \u00e1rg. &#8217;85 s\u00e9r\u00fatb\u00fana fyrir Danm\u00f6rku\u201c.<\/p>\n<p>\u00deetta virka\u00f0i og salan t\u00f3k kipp. J\u00e1rni\u00f0 var hamra\u00f0 \u00e1 me\u00f0an \u00fea\u00f0 var heitt. Tveimur vikum s\u00ed\u00f0ar var augl\u00fdst a\u00f0 \u201eS\u00e1 danski seldist upp \u00e1 einni viku, en n\u00fa t\u00f3kst okkur a\u00f0 f\u00e1 d\u00fdrari ger\u00f0ina af Skoda 120L s\u00e9r\u00fatb\u00fana fyrir Danm\u00f6rku\u2026\u201c. Ver\u00f0i\u00f0 var h\u00e6kka\u00f0 og salan gekk vel.<\/p>\n<p>\u00deetta virka\u00f0i l\u00edka vel \u00e1 marga k\u00fannana sem t\u00f6lu\u00f0u um \u00fea\u00f0 lengi \u00e1 eftir a\u00f0 s\u00e1 \u201edanski\u201c hef\u00f0i veri\u00f0 langbesti Skodinn \u00feeirra. En \u00fea\u00f0 eina danska vi\u00f0 \u00feessa b\u00edla var \u00e1letrunin \u00ed afturglugganum \u2013 l\u00edmmi\u00f0inn \u00fe\u00f3 \u00edslenskur.<\/p>\n<p><iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur hf. svona var umhorfs \u00ed j\u00fal\u00ed 1986\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/Q5z0X-d9vpU?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"Mopar s\u00fdning Austurb\u00e6jarsk\u00f3la\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/LzK8NmOXWbU?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur - augl\u00fdsingar - Chrysler - Peugeot - Skoda\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/zvayq44powM?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur - Jeep Cherokee - alls sta\u00f0ar \u00ed s\u00e9rflokki\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/8aSitm-5rIY?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur - Skoda - Augl\u00fdsingar - Ingimar Eydal\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/vSYfeB-ZyaQ?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur - Peugeot 205 GTI \u00ed umfj\u00f6llun Ara Arn\u00f3rs\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/WaVXXYlsmZg?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur - Dodge Aries augl\u00fdsingar\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/N6vVv4zUDZU?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur - Skoda - Augl\u00fdsingar - engar pers\u00f3nur\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/RXpE814SOpQ?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur - Skoda - Augl\u00fdsingar   J\u00f6rundur\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/QHHNirJqeNQ?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><br \/>\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"J\u00f6fur hf - Skoda - Augl\u00fdsingar Halli\" width=\"620\" height=\"349\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/LqGsST-wZ4c?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><\/p>\n<h3>Related Images:<\/h3>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>https:\/\/photos.app.goo.gl\/yXMqsm7Rsz3owTnr5 https:\/\/photos.app.goo.gl\/31jBdXFaF2kjhjFT6 &nbsp; J\u00f6fur hf. \u2013 T\u00e9kkneska bifrei\u00f0aumbo\u00f0i\u00f0 hf. Flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 \u00e9g byrja\u00f0i a\u00f0 vinna hj\u00e1 Endursko\u00f0unarskrifstofu Bj\u00f6rns E. \u00c1rnasonar \u00ed Tjarnarg\u00f6tu 16, var \u00e9g sendur \u00ed T\u00e9kkneska bifrei\u00f0aumbo\u00f0i\u00f0 hf. sem \u00fe\u00e1 var til h\u00fasa vi\u00f0 hli\u00f0 Oddfellow h\u00fassins &hellip; <a href=\"https:\/\/eyjolfur.is\/?page_id=539\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"","meta":{"ngg_post_thumbnail":0,"footnotes":""},"class_list":["post-539","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/539","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=539"}],"version-history":[{"count":86,"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/539\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2757,"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/539\/revisions\/2757"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/eyjolfur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=539"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}