Eyjólfur Brynjólfsson

Myndir og myndbönd úr safninu mínu

05 – Opel Kadett

Þegar hagur batnaði áræddi ég að fá mér nýrri Opel. David Pitt var sá sem átti þennan á undan mér. Mér tókst að beygla hann nokkuð illa á vinstri hlið þegar ég var á Miklubraut að nálgast Háaleitisbraut úr vestri. Ég sá ekki International Scout þegar ég skipti um akrein, en hann var á blinda svæðinu og sást í hvorugum speglinum. Hjöbbi frændi sprautaði hann fyrir mig og ég skipti úr daufgulum lit í sterkari gulan lit. Við seldum hann svo þegar við fórum að byggja í Engjaseli. Þessi átti það sameiginlegt með öðrum Opel bílum sem ég átti að vera vandræðalítill.

https://photos.app.goo.gl/BxX5VPFN6jY8siax9