Eyjólfur Brynjólfsson

Myndir og myndbönd úr safninu mínu

10 – Chrysler LeBaron

https://photos.app.goo.gl/f2jvTgC9DYQzPTgT9

Á einhverju af mörgum samdráttarskeiðum varð þessi fyrir valinu hjá mér, enginn fjórhjóladrifinn jeppi þann daginn.
Hann sýndi svo sem þreytumerki, en hlaðinn þess tíma munaði, leðurklæddur, 360 vél að því mig minnir, eyddi helling.
Þetta var skömmu eftir að við keyptum af Jóni Hákoni, og gott ef hann var ekki tekinn uppí annan nýrri LeBaron.